Kreppan já...
Sem betur fer hefur hún ekki mikil áhrif á okkur. Ég er ekki með nein myntkörfulán, né á ég milljónir inni á reikningum eða í hlutabréfum. Kannski er best að eiga sem minnst eins og staðan er í dag. Þetta er hrikalegt ástand. En nóg um það, það breytist ekki þó ég bloggi um það.
Í kvöld ætla Andrea og Tara að gista hjá ömmu Öddu og eru agalega spenntar. Það þýðir að við Rikkó verður ein heima í kvöld. Ég veit ekki hvað við gerum, ég er nú bara spenntust fyrir einhverju góðu að borða og svo sjónvarpskvöldi í sófanum. Kemur í ljós. Annars verður ekkert merkilegt gert þessa helgi, nema að ég ætla að kíkja í heimsókn til pabba, svo langt síðan við hittum hann.
Andrea missti tönn nr. 2 þann 1. október. Það er önnur framtönnin þannig að hún er ansi breytt núna. Æ, þetta er svo dúllulegt :) Hún er auðvitað hæstánægð og bíður eftir að hinar detti. Það er ein fullorðinstönn byrjuð að koma upp í neðri gómi... hún er að verða svooo stór!
Góða helgi :)

Bloggarar
Litlir bloggarar