Been there... broke that!

föstudagur, september 12, 2008

Vikan og villingar

Ég elska föstudaga... þó að þessi helgi verði ansi bissí þá er allavega afslöppun hjá mér á sunnudaginn. Í kvöld er ég að fara á haustfagnað hjá dagmömmunum og annað kvöld er ég að fara að vinna aðeins með vinkonu minni. Já já, það er alltaf gaman að hafa nóg fyrir stafni.

Síðasta þriðjudagskvöld bauð hún Hildur vinkona mér út að borða á Hereford. Það var æðislegur matur, mæli með honum. Svo var þetta líka bara æðislegt kvöld, við hottumst of sjaldan og því er alltaf svo gott að hittast og fá update á lífi hvor annarrar. Takk fyrir mig!

Á miðvikudagskvöldið fór ég svo til Döggu minnar að hjálpa henni í smá brúðkaupsundirbúning. Þar voru líka Bergdís, Vallý og Kata þannig að þetta var góður hópur og rosa gaman. Ég vona að ég hafi gert meira gagn en ógagn.

Í byrjun vikunnar fór Andrea á hlaupahjólinu sína í skólann. Hún fann það svo ekki þegar hún var að fara heim því einhver hafði greinilega tekið það. Það kom svo í leitirnar í gær og þá var búið að gjöreyðileggja það. Henni skildist á einhverjum strák sem hjálpaði henni að finna hjólið að það hefðu verið krakkar í 11 ára bekk að leika sér með það og leika sér að eyðileggja það. Hjólabúnaðurinn er brotinn og það er allt rispað og krambúlerað þannig að það er ekkert hægt að laga það. Æ, ég er svo sár. Hvað er að krökkum?? Hún er auðvitað miður sín litla greyið. Skólinn ber enga ábyrgð þegar svona gerist en mikið langar mig að finna þessa krakka og lesa yfir þeim.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters