Been there... broke that!

fimmtudagur, september 25, 2008

Blogg blogg

Sit heima hjá Írisi að passa aðeins fyrir hana, drengurinn er reyndar sofandi... en ég sit hérna. Mundi allt í einu að ég hefði ekki bloggað lengi. Af mér er svo sem ekki mikið að frétta. Var lasin um síðustu helgi og Andrea líka þannig að við vorum báðar veikar heima á mánudaginn. Hún fór svo í skólann á þriðjudaginn og ég að vinna og við erum orðnar betri. Smá hósti ennþá en ekkert alvarlegra en það. Það er einhver pest að ganga.

Á morgun á hann Rikki afmæli, stórafmæli meira að segja, verður þrítugur. 30 ÁRA. Ég er ekki að ná þessu, vorum bara börn þegar við byrjuðum saman! Já, tíminn líður hratt! Við ætlum bara að eiga notalegt kvöld en gera kannski eitthvað næstu helgi, það verða allavega ekki veisluhöld í þetta sinn.

Ég er í fýlu, eða svona smá fýlu, yfir að Joshua hafi unnið So You Think You Can Dance, ég hélt með Twitch. Svo er ég ekki ánægð með Britains Next Top Model, Ally er tík. Stefanie átti að vinna þetta. En ég er ánægð með að ANTM byrji aftur æsta miðvikudag, það er skemmtilegra.

Þetta er skrítið lyklaborð. Ég blogga meira seinna...


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters