Been there... broke that!

miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Neiii ekki Harold minn!!



Leikarinn Ian Smith, sem er mörgum að góðu kunnur sem Harold Bishop í áströlsku sjónvarpssápunni Nágrannar, mun brátt hverfa af skjánum eftir 16 ár. Enginn hefur leikið lengur í þáttunum en hann.

Smith samþykkti á síðasta ári að halda áfram að leika í þáttunum í hlutastarfi eftir að samkomulag náðist við framleiðendur þáttanna. Nú hefur hins vegar verið staðfest að síðustu senur Smith, sem er sjötugur, verði teknar upp í október.

Síðustu þættirnir með honum verða sýndir í Ástralíu í febrúar og í Bretlandi næsta vor.

Smith hóf að leika í þáttunum árið 1987 en hvarf svo af skjánum eftir fimm ár, en þá átti Harold Bishop að hafa farist úti á sjó.

Árið 1996 sneri Harold til baka en persóna hans er sögð hafa þjáðst af minnisleysi.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters