Kílóin já alveg rétt
Jæja, það er ekki mikið að frétta af kílóunum mínum nema jú það að þau fuku nokkur í burtu því ég drakk ekki Build up í nokkra daga. Bæði vegna þess að þetta fór svolítið illa í magann á mér, ég verð að finna mér einhverjar trefjar eða eitthvað til að borða með þessu því þetta er svo stemmandi. Ég er bara léleg í öllu svoleiðis. Svo er ástæðan líka að ég fann ekki súkkulaðitegundina í nokkra daga. En ég drakk þetta í gær og hinn þannig að þetta er allt að fara í vinnslu aftur.
Ég náði að komast upp í 49 kíló, sem er mjög gott, en núna er ég um 47 aftur. Ég hugsa að ég verði alveg aftur fljót að ná hinum. En ég held áfram að láta ykkur vita :) Það eru ekki bara til megrunarblogg sko, líka fitunarblogg :)
Síðasta helgi var annars mjög fín. Við fjölskyldan fórum á ættarmót rétt hjá Vík í Mýrdal. Þetta voru sem sagt niðjar foreldra ömmu Möttu. Þetta var rosalega gaman, alltaf gaman að hitta fólkið og kynnast nýju fólki. Andrea naut sín líka vel, lék sér úti nánast allan tímann. Tara var ekki með okkur því hún var hjá Öddu ömmu sinni en hún fer til hennar aðra hverja helgi :)
Planið fyrir næstu helgi er ekki merkilegt held ég. Afslöppun... ekkert út á land í þetta sinn. Hugsa samt að við drífum í að fara að kaupa skóladótið, nú eru bara 12 dagar þangað til stelpurnar byrja í skólanum... úff þetta er fljótt að líða!!!

Bloggarar
Litlir bloggarar