Been there... broke that!

mánudagur, ágúst 18, 2008

Ég veit ekki...

Hvað ég get sagt. Er eitthvað til sem heitir sumarendaleiði? Ég er pínu leið þessa dagana og kannski er það vegna þess að sumarið er að klárast. Kannski kannski... kannski er ég bara með mánudagspirring. Ég er samt ekki leið yfir að fríið sé búið. Þó það sé náttúrulega yndislegt að vera í fríi þá finnst mér svo mikill léttir að vera byrjuð að vinna aftur og vera komin í gömlu rútínuna. Það byrjaði hjá mér ný stelpa eftir sumarfríið sem er rosalega góð og sæt og gengur svo vel. Svo er ég reyndar að fara að missa hann Sævar minn inn á leikskóla en hann hefur verið hjá mér frá því ég byrjaði að vera dagmamma. Það verður skrítið.

Ég er 46.6 kíló. Ég er ekki búin að drekka Build up í nokkra daga, kannski viku. Þetta er ekki til í búðunum sem ég versla í og ég nenni ekki að keyra út um allan bæ að eltast við þetta. Kannski ætti ég drekka einn bjór alltaf fyrir svefninn. Maður hlýtur að þyngjast af því, langar samt ekkert í bjórvömb. Dagga.. ég vil fara að koma með þér í ræktina beibí... it is time!

Mikið er ég ánægð með að America´s fuinniest home videos sé byrjað á Skjá einum. Þetta eru samt ekki alveg sömu þættirnir án Bob Saget... eins og hann var pirrandi stundum þá bara passaði hann inn í þetta einhvernveginn. Þetta er samt skemmtilegt, mér þykir gaman að hlæja að óförum annarra ;)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters