Átaksblogg?
Núna er ég á fullu í að reyna að þyngja mig. Og þegar ég segi á fullu þá meina ég bara að borða mikið (eins og ég hef reyndar alltaf gert) og að auki drekk ég Build Up einu sinni til þrisvar á dag. Ég lagði loksins í að smakka það, því mér finnst flest svona orku-mjólkur-sull ógeðslegt. En þetta er bara ágætisdrykkur. Build up súkkulaðiduft hrist saman við mjólk. Eiginlega bara eins og kakómalt. En núna ætti ég kannski að birta þyngd mína á blogginu í hverri viku... aðallega svona til að hafa ástæðu til að blogga um eitthvað... finnst ég aldrei hafa neitt að segja. Ég skal koma með nákvæma þyngd inn fljótlega, man ekki hvað ég er núna, en það er ca 45-47 kíló. Mig langar að ná að minnsta kosti upp í 53 kíló...helst meira, jafnvel 55 kíló. Ég er 1,63 á hæð og er ekki alveg viss um hver kjörþyngd mín er, en svo mikið veit ég að hún er vissulega ekki 45 kíló!
WISH ME LUCK og fylgist með!! :)
WISH ME LUCK og fylgist með!! :)
Bloggarar
Litlir bloggarar