Summertime
...and the living is easy!
Allt gott að frétta. Engar mýs hafa sést hér síðan aðfaranótt 22. júní, enda músagildrur og músafælur og ég veit ekki hvað og hvað hérna úti um allt. Vonandi er þessum músakafla í lífi mínu bara lokið.
Í gær var eitthvað svart hérna uppi í loftinu, ég var ekki með gleraugun á mér og sá því ekki alveg hvað það var. Hugsaði með mér að þetta væri líklegast bara fluga. Áðan mundi ég svo eftir þessu og leit upp og svarti "bletturinn" er horfinn. Hvað ef þetta var kónguló???? Æ og ó mig er farið að svima af tilhugsuninni. Frekar vil ég mýs takk.
Ég er í sumarfríi sem er afskaplega indælt. Ég vaki langt fram á nótt, til nákvæmlega einskis. Ég vil það bara því ég er í fríi. Svo ligg ég í rúminu fram að hádegi bara svona af því að ég get það alveg. Um að gera að njóta þess að liggja í leti. Ég reyndar þvæ þvott eins og vitleysingur enda er það eitt af því skemmtilegasta sem ég geri. Ef ég næ ekki að fylla þvottavélina þá æði ég um íbúðina eins og dópisti í leit að skammti til að reyna að finna eitthvað skítugt til að þvo. Bara eitthvað. Ég elska "klikkið" sem þvottavélin gefur frá sér þegar hún er búin að þvo því þá get ég náð í hreina vel ilmandi þvottinn minn. Mmmm.... það fer að heyrast "klikk" núna bráðum. Nei, ég ætla ekki á Klepp. Ég gæti nú haft verri ávana en þetta!!
Gallup hringdi í mig áðan. Ég svaraði örugglega hundrað spurningum mjög samviskulega. Sagðist vera á móti ríkisstjórninni og alles. Ég er hard ass og rebbel!
Jæja eplin mín, ég er farin að þefa af þvotti.
Verið sæl að sinni.

Bloggarar
Litlir bloggarar