Been there... broke that!

fimmtudagur, júlí 24, 2008

Fyrstu tölur

Samkvæmt vigtinni núna, reyndar að kvöldi til er ég 48,2 kíló. Mér finnst það ágætlega mikið þar sem síðast þegar ég vigtaði mig - fyrir svona viku - var ég ekki nema milli 45 og 46 kíló. Líst vel á þetta. Er búin að drekka Build upp fyrir svefninn núna 3 kvöld í röð. Kannski virki svona vel :)

Ekkert að frétta annars. Við mæðgurnar fórum með pabba á Þingvelli síðasta sunnudag í smá veiðitúr. Veðrið var ekki með besta móti, smá rok og rigning á köflum. Við veiddum engan fisk en þetta var samt stórskemmtilegt. Við borðuðum nesti og slökuðum á. Þetta var bara mjög hressandi í alla staði.

Núna eru 2 vikur þangað til sumarfríið mitt er búið... þetta hefur verið fljótt að líða skal ég segja ykkur. Núna reyni ég að nýta dagana í eitthvað annað en að sofa og liggja í leti frameftir öllum degi.

Góða nótt :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters