Been there... broke that!

fimmtudagur, júlí 31, 2008

Andvaka

Já, klukkan er rúmlega 3 og ég get ekki sofið. Ég skil ekki hvað er að mér þessa dagana... vaki allar nætur. Mér finnst þetta pirrandi því ég er þessi týpa sem verð að hafa rútínu á öllu. Fara að sofa á ákveðnum tíma og vakna á ákveðnum tíma, annars fer allt í rugl einhvernveginn. Ætla að stilla klukkuna á 9:30 og fara á fætur þá. Þá kannski vonandi hugsanlega get ég sofnað á skikkanlegum tíma annað kvöld. Ég er nú svo sem ekkert sofandi allan daginn en sef yfirleitt fram að hádegi. Æ, þá er dagurinn ónýtur. Það er bara vika eftir af sumarfríinu og ég vil ekki nýta hana í svona rugl, hana nú!

Ætlið þið að gera eitthvað um versló? Ekki við, nema kíkja aðeins á pabba. Hann leigði hús upp í sveit því þeir eru að fara að veiða hann og fleiri. Hann bauð okkur í heimsókn og við erum að hugsa um að kíkja á föstudag eða laugardag, það verður bara næs. Elska að komast aðeins út fyrir bæinn :) Þá líður manni í alvöru eins og maður sé í frí nefnilega.

Ekki mikið að frétta af kílóunum mínum. Ég held áfram að borða og drekka minn build up, vigta mig svo á kvöldin. Ég vigtaði mig síðast í gær og var þá ennþá nákvæmlega 48,2 kíló. Stóð í stað, sem er skárra en að léttast. Ég hef trú á að þetta virki. Svo er þetta líka bara svo gott. Hlakka akktaf til að fá mér. Ég bara veit ekki hversu oft ég má drekka þetta á dag, þori ekki að drekka þetta oftar en tvisvar. Það stendur ekkert um það á pakkanum en þið megið segja mér ef þið vitið það? Þetta er ekkert Herbó-dæmi, bara svona sem fæst út í búð. (Þetta er til dæmis gefið gamla fólkinu á elliheimilunum ;))

Jæja, best að reeeyyyna að sofna...

Hafið það gott um helgina öllsömul.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters