Músamál
Jæja, músabrjálæðið hélt áfram. Við urðum þó ekkert vör við þessa mús meira fyrr en á laugardagskvöldið. Ég var heima hjá Írisi í afmæli, sem var by the way æðislega gaman! Takk fyrir mig! Ég lét myndir inn á MySpace-ið mitt. En allavega, þegar ég kem heim þá er Rikki búinn að snúa öllu við hérna heima. Þá hafði hann heyrt skrítin hljóð og svo séð TVÆR mýs hlaupandi á gólfinu. *HROLLUR* Hann náði að króa eina af úti í horni. Hann var ekki með neitt "vopn" þannig að hann tók hana bara í lófann og hélt á henni út. Hún beit hann og klóraði alveg klikkuð allan tímann, stórsér á kallinum maður! Það var alveg sama hvað við leituðum mikið að hinni músinni, hún var horfin. Þessar mýs eru göldróttar!!
Á sunnudaginn keyptum við músagildrur og músafælu. Engin mús hefur enn veiðst í gildrurnar, en það er spurning hvort músafælan sé að virka því við höfum allavega ekki séð neina mús hérna síðan.
Oj pælið í að hafa mýs heima hjá sér!! Díses!
Rikki hringdi í Meindýravarnir Kópavogs og þeir segja að maður eigi bara að veiða þær sjálfur, þeir hjálpi ekkert nema þetta séu rottur eða eitthvað. Já, fínt, ef það væru rottur hérna þá væri ég flutt!!

Bloggarar
Litlir bloggarar