Been there... broke that!

fimmtudagur, júní 19, 2008

Með sigtið að vopni.

Að kvöldi mánudags, nánar tiltekið rúmlega miðnætti aðfaranótt þriðjudags, sitjum við bóndi minn í sófanum og ræðum það hvort við ættum að drífa okkur upp í rúm að sofa og þá verð ég vör við undarlegt hljóð í sjónvarpsskápnum. Ég hugsa fyrst ekkert um það, hélt að það kæmi úr afruglaranum eða DVD spilaranum. Svo slökktum við á öllum tækjum og hlustuðum í smástund, þegar við svo héldum að þetta hefði þá bara verið ímyndun heyrðum við bæði mjög greinilegt klór inni í skápnum. Eftir smá útfríkun og hlátur ákváðum við að við þyrftum að athuga þetta. Þá tók við smá tími sem fór í að ákveða hvort okkar ætti að halda á sigtinu (sem var vopnið okkar) og hvort ætti að opna skúffurnar og skápana. Svo tók Rikka nokkrar mínútur að sannfæra mig um að það væri enginn möguleiki að það gæti verið kónguló sem framleiddi svona hávaða og að kóngulær kynnu ekki að klóra.

Á endanum fékk ég að ráða hver gerði hvað (auðvitað). Ég opnaði aðra hurðina varlega.... ekkert kvikindi þar inni. Hljóðið hafði minnkað, kvikindið greinilega orðið vart við okkur. Við ákváðum að draga skápinn fram á gólf ef eitthvað skuldi leynast undir honum. Ekkert þar... (nema einn DVD diskur sem týndist um daginn). Ég prílaði því upp á skápinn og dró aðra skúffuna varlega út. Rikki stóð tilbúinn með sigtið. Þegar ég er rétt búin að toga í skúffuna stekkur upp úr henni snarklikkuð mús og æðir í áttina að sófanum. Rikki (hugrakki) öskraði eins og smástelpa og hoppaði upp í sófa og ég hljóp í sturlun minni eitthvert í átt að svefnherberginu, ég eiginlega man það ekki enda var þetta mikið áfall skal ég segja ykkur.

Sigtisaðgerðin virkaði sem sagt ekki. Sigtismaðurinn klikkaði þannig að nú þurftum við að finna lítið músarkvikindi í íbúðinni okkar um miðja nótt (en þarna var klukkan orðin rúmlega eitt). Ég var reyndar nokkuð viss um að mig væri að dreyma því þetta bara gat ekki verið, skildi ekki hvernig hún komst inn til mín og af hverju hana hefði svona mikið langað til að eiga heima í skúffunni, snúruskúffunni nánar tiltekið. En okkur var ekki til setunnar boðið. Hér var því ALLT tekið í gegn. Allt skoðað, allir skápar, allar skúffur, undir öllu, bakvið allt, inni í öllu!!! Við meira að segja tókum sófann í sundur ef hún hefði mögulega getað falið sig þar. Klukkan þrjú var allt orðið glimrandi fínt hér..... en engin mús fundin.

Ég veit ekki hvert hún hefur farið, og mig langar ekki að vita það. Kannski hljóp hún út, það var opið út á svalir. Ég bara vona það og verð að trúa því í mínu litla hrædda hjarta.

Þessa nótt (eða það sem eftir var af henni) svaf ég fullklædd, með náttbuxurnar girtar vandlega ofan í sokkana, bolinn girtan ofan í náttbuxurnar og svo í bundinni peysu yfir allt saman. Það var ekki möguleiki fyrir músarkvikindið að smeygja sér innan undir mín klæði.

Núna langar mig að flytja.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters