Been there... broke that!

miðvikudagur, mars 19, 2008

Rólegheit

Miðvikudagur. Síðasti dagur fyrir frí. Mmm hvað það er notaleg tilfinning. Tara verður hjá okkur um Páskana og ætlum við að hafa það notalegt bara og líklega ekki fara neitt nema kannski kíkja í bústaðinn til Döggu og Trausta, það kemur í ljós. Ætlum líka að kíkja í einhverjar heimsóknir eins og til dæmis til Hildar og Sigga og svona og ömmu og afa. Maður verður að nýta fríin sín í að hitta fólkið sem með hittir alltof sjaldan!

Ekki mikið búið að vera að gerast. Við mæðgur kíktum aðeins í heimsókn til mömmu og Baldurs á sunnudagskvöldið. Þegar við komum heim var yndið mitt hann Rikki búinn að þrífa allt eldhúsið og stofuna og sjæna alla íbúðina. Aðeins að gleðja kelluna sína því ég var búin að tala um að ég þyrfti að gera þetta. Ég var ekkert smá ánægð, þannig að við hentum okkur beint í sófa að kúra yfir sjónvarpinu! Frábær endir á góðri helgi :)

Í gær fór ég í ljós og á kaffihús með Júlíu, alltaf notalegt að spjalla yfir kaffibolla öðru hverju. Líka bara gott að komast aðeins út því maður er auðvitað heima allan daginn. Ég kannski óverdósaði aðeins af kaffinu því ég átti erfitt með að sofna svo í gær. Hékk í tölvunni og glápti á sjónvarpið fram yfir miðnætti og er því pínu þreytt í dag, en ekkert alvarlega.

Americas Next Top Model í kvöld og ég get ekki beðið, sjúkt hvað maður lifir sig inn í þessa þætti.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters