Bakarinn
Í kvöld er ég bakari. Ég er búin að baka samtals 3 skúffukökur í kvöld. Ein eyðilagðist hjá mér þannig að ég bakaði aðra. Upphaflega áttu kökurnar bara vera tvær og jú þær eru það víst núna. Tvær fínar og ein ónýt. Hún er komin í ruslið.
Ég er léleg að blogga. Hef fengið kvartanir.
Á morgun er ég að fara á páskabingó hjá Dagmæðrasamtakanna. Þar koma skúffukökurnar til sögu, ég er að baka þær fyrir bingóið þar sem þær verða til sölu í sneiðum namm. Ég þarf að borga fyrir að borða mína eigin súkkulaðiköku.
Ég er að reyna að horfa á Survivor með öðru auganu en þessi þáttur á erfitt með að halda athygli minni. Ég hef ekki horft á Survivor í nokkur ár. Þetta er fyrsti þátturinn í þessari seríu og fannst mér því tilvalið að byrja á byrjuninni og fylgjast með... en æ þetta er eitthvað þreytt. Ég vil bara Bachelorinn aftur... ég veit... ekki skárra sjónvarpsefni en mér finnst gaman að horfa á annað fólk gera skrítna hluti fyrir framan alheiminn. Raunveruleikaþættir, þeir eru my thing.
Kaffið mitt er svo gott. Ég ætla að sýna því athygli og horfa á lokakaflann af Survivor.
Góða nótt eplin mín.

Bloggarar
Litlir bloggarar