TÍMINN
Ég er alltaf að hugsa um hvað tíminn líður hratt. Allt í einu er kominn febrúar. Allt í einu er ég orðin 26 ára. Andrea fer í skóla í haust. Rikki verður þrítugur í september. Mér finnst svo stutt síðan ég var 18 ára, nýbyrjuð með Rikka. Mér finnst svo stutt síðan ég var ólétt af Andreu. Vá hvað tíminn líður hratt. Áður en ég veit verður þetta allt saman búið bara.
Föstudagur í dag, sem eru einmitt uppáhaldsdagarnir mínir. Mér finnst föstudagar betri en laugardagar. Kannski því að þá er meira eftir af helginni. Planið þessa helgina er afslöppun yfir TV í kvöld og svo að hitta Döggu, Silju, Karó og fleiri skvísur á morgun. Ætlum að hittast heima hjá Karó, verður örugglega mjög gaman. Rikki verður heima í kósíkvöldi með stelpunum.
Á sunnudaginn langar mig að gera eitthvað. Veit ekki hvað, langar bara að fara út úr húsi.. í heimsókn eitthvert. Aldrei að vita hvað maður gerir. Á mánudaginn er kominn 11. febrúar og þá á Jennifer Aniston afmæli. Já, þeta veit ég. Ég veit svo margt sem skiptir engu máli.
Núna er klukkan allt í einu orðin 10. Ég ætla að fá mér kaffi.
Góða helgi öllsömul!

Bloggarar
Litlir bloggarar