Been there... broke that!

þriðjudagur, janúar 22, 2008

Gleðilegt ár

Brjálað veður úti. Ég elska brjálað veður, sérstaklega þegar maður þarf ekki að fara út á morgnana lengur. Ég þarf svo ekkert endilega að fara út í dag frekar en ég vil, verí næs. Nú er bara að bíða eftir myrkrinu, kveikja á kertum, fá sér kaffibolla og hlusta á vindinn úti. I like it.

Gleðilegt ár annars öllsömul og takk fyrir það liðna :)

Þetta ár verður gott, ég finn það á mér. Svo er ég líka búin að ákveða það og það hlýtur að hafa eitthvað að segja. Það segir allavega "The Secret". Já, nú er ég ofsalega bjartsýn, þýðir ekkert annað. Brosi mínu blíðasta brosi framan í árið 2008. Ég hef ákveðið að gera ekki annál fyrir árið 2007 eins og margir hafa gert því eftir smá umhugsun held ég að það sé ekkert sniðugt að rifja það upp. Nú bara horfi ég framávið, ekki til baka! Er það ekki málið?

Ég ætla núna að fá mér djús og köku, það er fínasti hádegismatur skal ég segja ykkur.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters