ÓTTIST EIGI
Ég er mætt á ný!
Djöfull þoli ég ekki að vera netlaus. Var netlaus í nákvæmlega eina viku og ég skil ekki hvernig ég lifði þetta af! Þessi vika er bara í móðu sko, jæks! Læt þetta ekki gerast aftur!
Helgin var skemmtileg mjög. Á laugardagskvöldið fór ég heim til Karóar þar sem við fengum okkur bjór og spjölluðum heilmikið. Við höfðum margt að ræða! Við skelltum okkur svo niður í bæ, fórum fyrst á Óliver þar sem við fengum okkur kokkteil en fórum svo stuttu síðar á Kaffibarinn. Ég stoppaði ekki lengi þar og var komin snemma heim. Það er best :)
Þessi vika er búin að vera fljót að líða. Andrea er búin að vera svo dugleg að fara í leikskólann á morgnana en það er búið að vera mjööög erfitt síðustu vikur. Þetta virðist allt vera að koma hjá henni. Svo er ég búin að vera slöpp reyndar með hita, hálsbólgu og magapest en er orðin fín núna. Eins og ný bara!
Annað kvöld er mér boðið í afmæli til Dagrúnar Fannýjar og mig langar rosalega að fara... en það fer allt eftir því hvort Andrea verður heima eða hvað. Furðulegt að tvær síðustu helgar hef ég farið út og er svo boðið aftur núna... en á undan því djammaði ég síðast 17. mars! Æ stundum hittist þetta svona á!
Gott að Ebony fór heim úr ANTM í gær, hún pirraði mig.
Farin að glápa á Granna...

Bloggarar
Litlir bloggarar