Tomorrow
Á morgun fæ ég íbúðina í Ásakór afhenta. Ég er rosalega spennt og þetta leggst allt ofsalega vel í mig. Ég er svona aðeins byrjuð að pakka niður. Eiginlega allt í stofunni komið en er ekki byrjuð á eldhúsinu, það er eiginlega mesta vinnan þar. Annars er ég eitthvað ótrúlega róleg yfir þessu, er ekki neitt stressuð. Það kemur kannski eftir nokkra daga.
Fór á smá jólahitting með dagmömmunum á föstudagskvöldið. Það var mjög fínt en sökum hræðilegs hausverks þá fór ég snemma heim. Höfðinu mínu líkar ekki vel við áfengi. Fúlt, ég er til dæmis í þessu fína djammstuði núna.. en það er sunnudagskvöld og vinna á morgun. Ég er farin að sofa...

Bloggarar
Litlir bloggarar