Been there... broke that!

þriðjudagur, nóvember 06, 2007

Pælingar

Af hverju í ósköpunum er ég ekki að skúra núna? Ég var búin að ákveða að skúra í hádeginu, ohh! Ég er mjög dugleg að taka til, þvo þvott, þurrka af og svoleiðis en að skúra... það er eitthvað sem ég er alltof löt við! Jæja nóg um þjáningar þreyttrar húsmóður!

Í gær fórum við Andrea í heimsókn til ömmu og afa á Tunguveginn. Ég held að það sé enginn staður í heiminum sem mér líður betur á en einmitt hjá þeim. Þegar ég kem þangað þá langar mig aldrei að fara heim. Við vorum frekar seint á ferð í gærkvöldi þannig að við gátum ekki stoppað mjög lengi. Ég get ekki hugsað mér lífið án ömmu og afa, þau hafa einhvernveginn alltaf verið þarna og ég var svo mikið hjá þeim þegar ég var yngri... svo hef ég líka verið hjá þeim öll jól síðan ég fæddist. Fyrir mér eru jólin heima hjá þeim... þegar ég heyri orðið JÓL þá hugsa ég um ömmu og afa og þeirra heimili. Amma er orðin 85 ára en ennþá eldar hún kalkún og meðlæti fyrir alla sem vilja koma, hún er svo dugleg. Afi er 84 ára og hann fer ennþá daglega í gönguferð í Elliðaárdalinn. Æ, þau er svo yndisleg. Mig langar að eiga heima hjá þeim! Hmm þau myndu nú kannski ekkert samþykkja það.. en mig langar það bara samt ;)

Í dag eftir vinnu eru svona ca. milljón hlutir sem ég ætla að gera en ég giska á að ég klikki á flestum þeirra, þannig er bara lífið mitt. Því meira sem ég ákveð að gera því minna geri ég. Story of my life!

Núna hins vegar ÆTLA ég að fá mér eitthvað að borða!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters