Södd.... en vannærð!
Mig vantar ráð! Núna er ég 44 kíló... já það er lítið en við skulum komast yfir það. Mig langar að vera ca. 55 kíló. Hvað á ég að gera til að ná þessum kílóum á mig? Það dugar ekki að borða og borða óhollan og fitandi mat, ég geri það alla daga og það virðist grenna mig frekar en fita. Ég stunda líkamsrækt 2-4 sinnum í viku og er þá aðallega að lyfta, en alls ekki að brenna. Þið eruð nokkrar þarna sem ég veit að getið ráðlágt mér... ÖLL ráð eru vel þegin.
Núna var ég að troða í mig tveimur spældum eggjum og ég skolaði þeim niður með kóki. Eftir smástund fæ ég mér kaffi og kanilsnúða.
Helgin verður róleg og góð. Tara og Silja eru komnar til landsins og er ég búin að panta að hafa Töru núna um helgina. Við stelpurnar þrjár ætlum því að hafa það rosalega gott og reyna að gera eitthvað skemmtilegt saman. Uppástungurnar eru til dæmis sund og bíó. Mér líst betur á bíóið því þar þarf ég bara að sitja í tvo tíma og gera ekkert. Við sjáum til.
Helgina eftir það er ég að hugsa um að djamma. Nú hugsið þið sem þekkið mig... já já einmitt, hún segist ætla að djamma.. og það er líka alveg rétt hjá ykkur. Ég ætla sem sagt að "stefna á að gera tilraun til að djamma kannski" hahaha. Þetta kemur allt í ljós. Allavega ætla nokkrar stelpur að koma til mín og við ætlum að hafa skemmtilegt hér heima hjá mér. Fyrsta partíið sem er haldið hér í íbúð 108 í Álfkonuhvarfinu. Ekki missa af því.. sko ef þú ert stelpa... strákar fá ekki aðgang. Ég vil ekki karlmannsþef í mitt hús!
Jæja Nágrannar kalla... þeir hafa staðið þétt við hlið mér í 17 ár og munu aldrei bregðast mér.

Bloggarar
Litlir bloggarar