Been there... broke that!

fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Skúra, skrúbba og bóna...

Hvernig finnst ykkur best að þrífa parket? Ég nota stundum Edik og stundum einhverja sápu sem ég keypti í Rekstrarvörum. Hvort tveggja virkar ágætlega en mér finnst ég alltaf sjá för á gólfinu og eftir nokkra klukkutíma virðist það vera skítugt aftur. Eigið þið ekki einhver dúndur ráð handa mér? Kannski er ég bara smámunasöm...

Ég er hætt að fara snemma að sofa á kvöldin, ég bara get það ekki. Einu sinni var ég alltaf sofnuð í síðasta lagi kl. 23 en núna finnst mér ég ekki geta farið að sofa fyrr en í fyrsta lagi kl. 1, finnst eins og það sé skylda mín að vaka svo lengi. Úff, ég er líka þreytt á morgnana fyrir vikið. Ég ÆTLA snemma að sofa í kvöld, um leið og So you think you can dance er búið!

Síðast þegar ég bloggaði var ég að baka skúffuköku og ég er að hugsa um að gera það aftur í dag.

Hafið það gott!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters