Æ lov helgar
Yndislegur föstudagur í dag og skúffukaka bakast í ofninum. Mmmmm (Já, Dagga ég skal gefa þér á eftir.) Krakkarnir sofa og Nágrannar fara að byrja. Það er hápunktur dagsins hjá mér, að horfa á Nágranna! Ég þoli ekki þetta nýja fólk sem var að flytja inn á nr. 30. En svona þegar ég hugsa um það þá hef ég aldrei þolað neinn nýjan sem hefur byrjað í þáttunum, svo bara venst maður þeim. Ó, Nágrannar. Nágrannarnir mínir!
Síðasta helgi var hræðileg. Hræðilegheitin byrjuðu reyndar ekki fyrr en á sunnudagsmorguninn en þá byrjaði ég að æla! OJ! Og ég ældi fram á kvöld. Ég held að þetta sé versta magapest sem ég hef fengið, ég svaf ekkert í meira en sólarhring því ég bara gat varla farið frá baðherberginu. Úff, það þarf varla að taka fram að það fóru þónokkur kíló í þessari pest, heil SEX kíló! Ekki mátti ég við því.... nú er ég að vinna þetta upp, t.d. með skúffukökunni ;)
Ég veit að það eru margir sem segja að ég eigi að vera ánægð með að vera grönn og vissulega er ég það. Margir verða hissa þegar ég segist vilja þyngjast og segja að ég sé biluð. Málið er að mig langar að þyngjast um svona 5-10 kíló. Mér finnst miklu flottara að hafa smá rass og svona, ekki vera alveg eins og spýta. Æ, ég er komin á trúnó núna... en mér finnst stundum leiðinlegt að mega ekki missa úr máltíð... þá er eitt kíló farið. Kannski kemur þetta allt einn daginn, ég eftir að vakna feit um fertugt.
Ég ætla að taka það rólega um helgina með mínum yndislega manni, kúra bara og horfa á videó. Alltof langt síðan maður hefur tekið sér helgi í það, maður er búin að vera á svo miklum flækingi undanfarið.
Jæja, Nágrannar kalla....

Bloggarar
Litlir bloggarar