Afsakanir
Ég ætlaði að fara að koma með afsökun um að ég væri svo léleg að blogga á sumrin. En þá fattaði ég að það þýðir ekkert að segja það, ég er léleg að blogga allan ársins hring!
Sumarið hefur verið frábært og þar stendur auðvitað Mallorca ferðin upp úr. Það var æðislegt úti. Hitinn var yfirleitt á milli 35° og 40°, það líkar mér vel :) Það þarf þó engan að undra að ég varð ekki mikið brún en ég bætti nokkrum freknum í safnið. Ótrúlegt hvað ég er lengi að taka lit alltaf! Rikki og stelpurnar tóku góðan lit en ég held nú að hún Tara hafi unnið brúnkukeppnina, hún var orðin veeeel brún bara fyrsta daginn :)
Við gerðum margt, þ.á.m. fórum við í dýragarð (sem mér finnst alltaf mest spennandi), fórum í sædýragarð, inn í Palma og fleira. Rikki fór með stelpurnar í vatnsrennibrautagarð, ég nennti ekki að bíða í hálftímaröðum til þess að renna mér niður í 5 sekúndur. Æ, vatnsrennibrautagarðar eru bara ekkert fyrir mig. En allt hitt var ÆÐISLEGT!
Um síðustu helgi fórum við í útilegu á Flúðir. Ætlunin var ekki að vera lengi enda var spáð vondu veðri. Svo var veðrið fínt og mjög gaman þannig að við vorum fram á mánudag. Þetta var fyrsta útilegan hennar Andreu og fyrsta útilegan okkar Rikka saman! Ekki beint duglegt ferðafólk!!
Núna er ég byrjuð að vinna aftur og finnst það bara fínt. Það er gott að koma lífinu í rútínu aftur :)
Bæ í bili.....

Bloggarar
Litlir bloggarar