Been there... broke that!

þriðjudagur, júlí 03, 2007

Þreyta og leti

Ég er svo syfjuð þessa dagana eitthvað og sérstaklega í dag. Á sumrin þá vakir maður lengur á kvöldin, bara eins og af einhverri skyldu því það er bjart úti og svona. Ég sofnaði ekki fyrr en að verða 2 í nótt og svo hrökk ég upp kl. 7:54 JÆKS! Þetta er ekki sniðugt. Og af því að ég vaknaði svona snöggt og óþægilega þá verð ég þreytt og öfugsnúin í allan dag!

Ég vinn daginn í dag og á morgun, svo er ég komin í frí. Á fimmtudaginn stússa ég eitthvað fyrir ferðina og svo um nóttina er komið að því :) Þurfum að vera komin út á völl kl. rúmlega 4. Ég get ekki beðið, hlakka eiginlega jafnmikið til að fara upp á Leifsstöð eins og að fara til Mallorca :)

Jæja, ég verð að fá mér einn kaffibolla, kannski réttir hann mig aðeins við :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters