Rólegheit
Ahh ég elska helgar! Á morgun er ég að fara í tvöfalt þrítugsafmæli til Írisar og Guggu, ótrúlegt að þær séu orðnar þrítugar! Það verður gaman að kíkja aðeins út þó að ég búist ekki við að nenna á neitt skrall. Það er erfitt að djamma þegar maður er áttræður í anda ;) Hann Rikki minn er líka svo lasinn, kominn með lungnabólgu greyið þannig að maður verður nú að hjúkra manninum sínum :)
Núna er Tara í útilegu með afa sínum og fjölskyldu þannig að við erum bara litla fjölskyldan hér í Álfkonuhvarfinu en hún Andrea saknar þó systur sinnar. Við Andrea tókum herbergið hennar áðan algjörlega í gegn, þrifum það og breyttum því aðeins. Nú liggur hún sofandi inni í "nýja" herberginu sínu, alsæl með breytinguna. Hún hlakkar mikið til að sýna Töru.
Núna eru 14 dagar í Mallorca... reyndar bara 13 dagar því það er komið framyfir miðnætti. Mamma og co. fóru í morgun. Ég er búin að heyra í þeim og það er um 30 stiga hiti núna. Ohh ég get ekki beðið eftir að komast í sól og afslöppun. I need it.
Jæja, best að skella sér upp í sófa með Maxipopp og kók og njóta tilhugsunarinnar um að þurfa ekki að vakna snemma á morgun :)

Bloggarar
Litlir bloggarar