Rólegheit
Það hefur lítið verið gert þessa helgi annað en að slaka á. Á laugardaginn fórum við í afmæli til Helgu Sifjar og Brynju og eftir það var brunað upp í bústað til mömmu og Baldurs. Þar lágum við í leti, borðuðum grillaðan humar og lambakjöt og spiluðum frameftir. Bara notalegt!
Núna er ég að gera mig klára í að fara í heitt og gott bað. Stelpurnar eru komnar inn í rúm og ég er svona að reyna að slíta mig frá tölvunni. Get gert svo margt í henni, þarf að setja inn myndir og fleira en er ekki að nenna því núna.
Bara 26 dagar í Mallorca! Ohh get ekki beðið!

Bloggarar
Litlir bloggarar