Been there... broke that!

mánudagur, júní 04, 2007

Já ég held það

Ég er að hugsa um að byrja að blogga hér aftur. Líkaði alltaf betur við þetta blogg. Það er ekki mikið að frétta, ekkert merkilegt allavega. Dagmömmulífið gengur vel og mér líkar það mjög vel, þetta er alveg fyrir mig.

Það eina erfiða við þetta er þegar börnin hætta hjá manni. Ég var ekkert búin að pæla því, hugsaði bara að jú svo hættu börnin og þá kæmu ný í staðinn. Úff. Á föstudaginn síðasta hætti hún Herdís Milla hjá mér, hún var elst af krökkunum og svo skemmtileg. Mamma hennar kom svo með þvílíka körfu með ostum, kexi, rauðvíni og blómum. Ji, ekkert smá flott. Ég átti ekki orð. Ég á eftir að sakna Millu og foreldrenna hennar líka, þau voru svo næs :) Svona er þetta víst....

Þann 6. júlí förum við mæðgur til Mallorca með mömmu og fjölskyldu og ég get ekki beðið, bara 32 dagar í viðbót! Við verðum í tvær vikur á hóteli sem heitir Alcudia Pins og við mæðgurnar verðum í sér íbúð :) I like it.

Síðasta barnið var að fara og núna er Andrea að reyna að fá mig til að spila við sig. Mig langar svo bara að leggjast í sófann og gera ekkert.... Andrea var heima í dag vegna þess að hún er buin að vera með leiðinda augnsýkingu. Hún er sem betur fer að fara.

Jæja... ætli Dagginn minn fari ekki að banka upp á....

Verð duglegri að blogga núna!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters