Flensa
Oj er búin að vera lasin síðustu daga. Mér skilst að þetta sé að ganga, hiti, höfuðverkur, kvef og hálsbólga. Mér finnst ég samt vera að skána núna og ætla að vinna á morgun. Var ekki að vinna í gær og dag. Aldrei gaman að vera lasinn, sérstaklega ekki í þessari blíðu sem er búin að vera. Ég hafði rétt orku í gær í leggjast út á pall í hálftíma... þá var mig eiginlega farið að svima af sólinni. Væli væl!
Á morgun á Tara okkar afmæli. Hún er að vera 6 ára, ótrúlegt hvað tíminn líður. Ég man ennþá svo vel eftir deginum sem hún fæddist. Nú fer hún bara að byrja í skóla í haust jiminn! Hún verður hjá okkur fram í byrjun ágúst þannig að við höfum góðan tíma með henni í sumar. Þær systur eru auðvitað alsælar saman :)
ANTM í kvöld og ég get ekki beðið. Er ekki alveg búin að sigta út hverri ég held með en mér finnst Renee ótrúlega sæt en hún er þó algjör tík. Ég var ekki ánægð með að Felicia hefði verið rekin heim í síðasta þætti, hún er ekkert smá sæt. Enginn sem ég veit um þolir þessa Jael en það er eitthvað við hana sem ég fíla... vil ekki að hún verði send heim :)
Verið þið svo duglegri að kommenta ef ég á að vera duglegri að blogga!

Bloggarar
Litlir bloggarar