17 dagar
Ekki nema 17 dagar í Mallorca ferð, ótrúlegt alveg! Það er miklu betra að bóka með svona stuttum fyrirvara því þá þarf maður ekki að bíða eins lengi. Þvílíkur munur að vera boðið út. Við fáum farið, íbúðina og bílinn... svo er það bara að lifa og ég er búin að vinna mér inn pening til þess. Þetta verður æði, bara aðeins að komast frá og slaka á.
Hún Tara okkar átti afmæli þann 14. júní. Orðin 6 ára! Við héldum veislu fyrir hana á laugardaginn og heppnaðist það vel og var rosa gaman. Hún fékk æðislegar gjafir og meira að segja Andrea fékk líka nokkrar þó hún ætti ekki afmæli :) Á sunnudaginn var svo auðvitað 17. júní og skelltum við fjölskyldan okkur á Rútstún í Kópavogi. Mér finnst það miklu notalegra en að fara í miðbæinn. Þarna er alveg það sama að gerast og niðri í bæ, bara minni traffík og svona :) Hittum fullt af fólki sem við þekkjum og veðrið var æðislegt!
Ég er að horfa á Nágranna núna með öðru auganum á meðan ég skrifa þetta. Nágrannar eru líf mitt og yndi. Ég er svo ánægð með að Karl og Susan séu byrjuð saman aftur. Ég vona að Dylan sé pabbi barnsins hennar Sky. Ég þoli samt ekki að Sky haldi alltaf um magann á sér þegar hún labbar. Halló? Hver gerir það? Við vitum alveg að hún er ólétt! Mér finnst þessi nýja blinda stelpa creepy og giska á að hún sé alvöru dóttir Janelle og Tim. Ó, þetta er svo spennandi!!

Bloggarar
Litlir bloggarar