Been there... broke that!

föstudagur, september 01, 2006

Enginn veit.....

Almeran mín verður tilbúin um miðja næstu viku samkvæmt indælum starfsmanni verkstæðisins sem ég talaði við áðan. Það er sem sagt eitthvað að fara að ganga upp í lífinu mínu. Jibbí!

Dísa frænka, takk fyrir að kommenta, bara gaman að þú fylgist með :) Ég bíð spennt eftir Lykla-Pétri...hann má meira að segja koma með 6 aukalykla. Allavega er þetta eitthvað sem maður á eftir að passa upp á framtíðinni. "Enginn veit hvað átt hefur fyrr en týnt bíllyklum hefur."

Um helgina ætla ég að slaka á og liggja í leti. Er búin að sofa lítið þessa vikuna og ætla því að hlaða batteríin um helgina. Það eru ekki nema 13 dagar í Barcelona ferðina... úff, ég veit ekki hvort ég á að hlakka til eða kvíða fyrir. Ég hef aldrei verið svona lengi í burtu frá Rikka eða Andreu, hvorugu þeirra. Eitthvað segir mér samt að ég hafi bara gott af þessu.
"Enginn veit hvað átt hefur fyrr en farið til útlanda frá þeim í fimm daga hefur."

Mig langar að fara með manninum mínum á Footloose. Hafið þið séð þá sýningu? Hvernig var?


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters