Been there... broke that!

þriðjudagur, ágúst 15, 2006

Leti lengir lífið

Hef ekki nennt að blogga, nenni því ekki einu sinni núna. Sit heima í sumarfríi að borða brauð með kæfu og drekka trópí. Veðrið er geggjað og ég heyri í Dagrúnu úti að leika við krakkana. Ég er í náttfötum. Er samt að hugsa um að fara í sólbað út á pall, spánarbrúnkan er að hverfa.

Við fórum á ættarmót á Egilsstaði um helgina. Það var rosa gaman, skemmtilegt fólk, góður m atur o.s.frv. Það endaði samt frekar illa þar sem hún Andrea mín steig á geitungabú. Þeir réðust á hana í hundruðatali og hún fékk nokkrar stungur. Ég get bara hugsað að sem betur fer stóð ég alveg við hliðina á henni þegar þetta gerðist. Ég heyrði hana öskra, leit á hana og barnið var þakið geitungum, þeir voru meira að segja uppi í munninum á henni. Þetta var eins og í bíómynd. Ég trylltist, reif hana upp og hljóp inn á meðan ég sló af henni geitungahelvítin. Ég sá strax að það blæddi úr munninum á henni, hún fékk stungu í efri vörina, sem betur fer ekki inn í munninn. Hún var eins og fílamðurinn hálfan daginn greyið, þið getið séð myndir á heimasíðunni hennar. Þetta var lífsreynsla.

Jæja, brauðið búið... farin út í sólbað.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters