Já stelpur
Færslurnar mínar undanfarið hafa verið áhugaverðar, álíka áhugaverðar og líf mitt. Það er ekkert skemmtilegt að gerast hjá mér.
* Lykillinn að bílnum hans Rikka týndur, eigum ekki annan, kostar 100 þúsund að fá nýjan hjá umboðinu.
* Bíllinn minn klesstur, er á verkstæði núna, býst ekki við að fá hann á næstunni.
* Rafmagnið fór af um daginn á Vatnsendanum. Þegar það kom á aftur þá kviknaði ekki á sjónvarpinu okkar inni í stofu og hefur ekki kveikt á sér enn.
Hvað er að öllu? Jú jú, við eigum annað sjónvarp þannig að þetta skiptir ekki máli, þetta er bara mórall. Vonandi fáum við bílinn hans Rikka í vikunni. Við erum búin að vera með bíla í láni hjá ættingjum síðan ég klessti minn. Ohh ég nenni þessu ekki!!
Rock star í kvöld/nótt. Ég er að hugsa um að vaka og horfa, eða sofna og svo vakna og horfa. Er með samviskubit yfir að hafa aldrei kosið hann, nenni aldrei að horfa á þetta fyrr en í endursýningu. Þetta er samt spennandi. Ég held með Magna auðvitað, Ryan... og svo er Toby að koma sterkur inn. Storm er æðisleg.... eða var það allavega.... hefur aðeins dalað að mínu mati. Lukas og Dilana eru góð en ég er alveg að fá nóg af þeim.
Jæja, þið fenguð smá öpdeit af mínu skemmtilega lífi....
OAO.

Bloggarar
Litlir bloggarar