Been there... broke that!

mánudagur, júlí 24, 2006

Styttist....

Tíminn líður hratt.... allt í einu eru 3 dagar þangað til ég fer til Spánar. Einmitt núna eru meira að segja ca. nákvæmlega 3 sólarhringar þangað til ég fer í loftið, já Hemmi minn. Er aðeins farin að kvíða fyrir fluginu reyndar.....

Fúlt að vera að vinna núna. Er að vinna alveg þangað til ég fer út, verð reyndar í fríi eftir hádegi á miðvikudaginn en þá fer ég í VAX og það er sko ekkert fokkings frí skal ég segja ykkur!

Ég er komin á einhvern dúndur pensilínkúr. Fór til læknis á föstudaginn því ég er búin að vera stífluð í meira en mánuð. Kom í ljós að ég er með svona rosalega stíflaðar ennis- og kinnholur að ég er sem sagt komin á þennan 8 þúsund króna pensilínkúr + eitthvað stera-nef-sprey! Ég er nú ekki farin að lagast mikið ennþá en læknirinn lofaði að ég yrði fín fyrir Spán en þarf samt að vera á kúrnum í a.m.k. 12 daga. Þar fór Spánardjammið....... (right).

Jæja, farin út að borða hádegismat.

Later!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters