Been there... broke that!

miðvikudagur, júlí 12, 2006

Mysingur og draumar

Er ég ein um að finnast mysingur vera eitt besta álegg sem er til á brauð? Ég fór að hugsa um þetta í morgun og komst að þeirri niðurstöðu að það væru allavega ekki mjög margir aðrir. Ég man þegar ég var lítil þá borðaði ég stundum mysing með skeið mmmm og líka kjötfars.

Ég missti af Magna í gærkvöldi. Tommy Lee þótti víst ekki mikið í hann varið. Mér finnst ekki mikið í Tommy Lee varið.....

Það kom rotta heim til Hildar vinkonu í fyrradag. Hún sagði mér frá því í gær og mig dreymdi þessa blessuðu rottu í alla nótt. Í draumnum var ég stödd heima hjá Hildi. Rottan skoppaði út um alla íbúð og það heyrðist skrítið hljóð í henni. Hildur reyndi hvað eftir annað að snúa hana úr hálsliðnum og henda henni í ruslið en blessuð rottan skreið alltaf upp úr ruslinu aftur. Hildur ákvað þá að best væri að klæða hana í föt og eiga hana.

Mig dreymdi líka Júlíu vinkonu í nótt. Hún er ólétt af tvíburum og á að eiga í lok september. Í draumnum kom hún heim ti mín og tilkynnti mér að hún væri á leiðinni uppá spítala til að fæða börnin, það væri bara ekki hægt að bíða með það lengur. Við vorum mjög ánægðar með dagsetninguna sem var 12. júní 2006 (ekki 12. júlí eins og er í dag, weird) og vorum mjög fegnar að það yrði ekki 13. júní.

- ég verð að hætta að sofa á nóttunni.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters