Breytingar
Ohh ég ætlaði að breyta blogginu mínu. Þeir sem þekkja mig vita að ég bara VERÐ að breyta svona hlutum öðru hverju en ég virðist ekki geta það hér. Þá hverfa öll kommentin og allir linkarnir og það er svo mikið vesen að setja þetta allt inn aftur. Djöfull.
Pensilínkúrinn rándýri er ekki að gera neinar gloríur. Ég er ennþá stífluð og hnerrandi... en ég er þolinmóð! Ég er þekkt fyrir ótakmarkaða þolinmæði. Ég er líka svo ánægð með að vera að fara af landinu eftir 2 daga að ég þoli allt þangað til.
Hildur, langar þig eitthvað að hitta mig áður en ég fer mín kæra? Ég man ekki hvernig þú lítur úr lengur? (Ég lít ennþá eins út, voða sæt bara)
Mig dreymdi aftur eins og fávita í nótt. Mig dreymdi að ég ætti eðlu, stóra, flotta sem malaði þegar maður klappaði henni. Mig dreymdi líka að Lilla frænka hefði gefið mér risastóra vaselíndollu í jólagjöf, dollan var samt bara hálf. Utan á pakkanum stóð "Til Kristínar uppvöskunardömu frá Lillu, opnist þegar þú kemur heim". Á einhverjum punkti í draumnum var ég líka stödd inni á almenningsklósetti að þvo á mér hendurnar. Það kemur þá eldri maður að mér og segir mér að ég sé merkileg með mig. Ég svaraði honum ekki, enda of merkileg með mig til þess.
Magga og Stjáni (bróðir hans Rikka og konan hans) voru að eignast litla stelpu á sunnudaginn, þeirra fjórða barn. Ég kíkti á hana í gær og ég sver það, mér var bara illt... mig langaði svo mikið í svona lítið kríli. Við gáfum henni Liverpool samfellur, bangsa, skó og húfu. Rikki komst sem sagt í Liverpool búðina! Það eru allir óléttir eða að eignast börn.....finnst mér. Júlía er ólétt af tvíburum og á að eiga í sept. Íris er ólétt og á að eiga í okt. Magga var að eiga og Hildur mágkona átti í vor. Allir nema ég... og Hildur vinkona... við höfum hvor aðra.
Jæja vinna vinna.....
-blogga aftur eftir 10. ágúst!

Bloggarar
Litlir bloggarar