10 dagar
Ekki nema 10 dagar þar til ég kemst af þessu skítaskeri!!! Það verður munur að komast úr rigningunni í yfir 30 stiga hita! Ahhh yes thank you!!
Við fjölskyldan skruppum í tívolíið í gær. Ég þorði auðvitað ekki í eitt einasta tæki frekar en fyrri árin. Ég skellti mér samt í draugahúsið og var ekkert ofsalega hrædd. Aðra sögu er þó að segja af dóttur minni en hún gat ekki sofnað í gærkvöldi af hræðslu við draugahúsið... já spurning um að vera ekkert að fara með 4 ára börn í draugahús döööö... sérstaklega ekki ef þau eru eitthvað skyld ofurhuganum mér!!
Mig er aftur farið að dreyma og dreyma á nóttunni. Þetta gerist alltaf ef ég er kvíðin eða spennt fyrir einhverju. Jæja, í nótt var ég stödd í apóteki. Þar var ég að fá niðurstöðu úr þungunarprófi. Þau voru nefnilega svo indæl að "googla" niðurstöðunni fyrir mig þarna í apótekinu. Jæja, niðurstaðan var jákvæð þannig að ég ákvað að best væri að drífa mig í Snæland videó að fá mér að borða áður en ég færi að vinna í bankanum! Þar var Pétur sem rekur snæland videó í Kópavogi og hann var nú alveg viss um að ég væri þangað komin til að semja um videóskuld en ekki kaupa neitt þannig að ég var rekin út og fékk ekkert að borða! Ég fór því heim í fýlu. Þar beið Dagrún eftir mér, nýkomin úr ferðalagi og með gjöf handa mér. Æðislega flotta gulllitaða sokka! Hvað er að??? I need help!
Í kvöld er Grey's Anatomy, síðasti þáttur. Síðasta mánudagskvöld sem ég á með Dr. Dreamy! (dr. Shepard sem sagt, ekki ljótur!). Ég er svo ljót að ég vona að þessi Denny hafi ekki lifað hjartaígræðsluna af, ég þoli hann ekki. Hann er ljótur (sorrý, rífist við mig í kommentakerfinu ef þið eruð ósammála). Skil ekki hvað Izzy er að gera með honum, hún á að vera með hinum sæta unga stráknum!
Talandi um TV! Váááá hvað ég er orðin SJÚK í LOST þættina! Úff, sko Jack er án efa draumaprinsinn minn! Það sögðu allir að þeim fyndist Sayid svo æðislegur. Ég skildi það aldrei en svo loksins þegar ég var farin að "samþykkja" hann þá rak ég augun í það að hann er með LANGAR neglur! HALLÓ!!! Þar fór það! Saywer er skemmtileg týpa og Kate er sæt. Nú tek ég fram að ég er rétt að klára 1. seríuna og veit ekkert um 2. seríu. Vona að hún komi bráðum út á DVD!
Jæja... farin að vinna. OAO!

Bloggarar
Litlir bloggarar