Been there... broke that!

föstudagur, júní 30, 2006

Smá sumafrí

Jæja, síðasta dagurinn í dag og svo er ég komin í vikufrí. Það er stutt... en samt kærkomið! Ég tek svo afganginn í lok júlí og fram í miðjan ágúst. Það verður fínt, get eiginlega ekki beðið.

Ég sé að ég er búin að blogga 225 sinnum - með þessari færslu. Hvað í andskotanum hef éf eiginlega verið að tala um?? Ég get ekki einu sinni ímyndað mér það og ekki nenni ég að lesa röflið í mér aftur í tímann. Ja hérna hér.

Við vorum að kaupa okkur fyrstu seríuna af Lost áðan. Ég hef ekki séð einn einasta þátt en allir sem ég þekki sem horfa á þá segja að þeir séu geggjaðir. Kannski verður þetta eins og með Desperate Housewifes. Ég keypti mér einmitt seríuna með þeim og svaf varla fyrstu næturnar á eftir... ég varð alltaf að sjá einn þátt í viðbót... og svo einn þátt í viðbót. Þetta er spennandi, nú loksins mun ég vita hvað fólk er að tala um þegar það talar um Lost.

Jæja börnin mín, veit ekki hversu mikið ég blogga næstu vikuna. Ætla að gera mikið af því að liggja.... sitja... liggja í sólbaði... gera krossgátur... (þvo þvott-endurraða í skápa - þrífa og allt það líka).

Góða helgi.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters