Ofvirk!
Ég er búin að vera ofvirk undanfarin kvöld. KVÖLD, ekki daga! Ég er búin að gera ýmislegt síðustu kvöld sem ég hef ekki nennt að gera lengi! Í fyrrakvöld SMÍÐAÐI ég skóskáp með berum höndum! Já já, það er hægt að kalla þetta að "setja saman" en þar sem að þarna kom skrúfjárn, hamar og ýmislegt fleira við sögu þá vil ég kalla þetta að SMÍÐA! Í gærkvöldi tók ég herbergið hennar Andreu í gegn! Henti fullum svörtum ruslapoka og lét annað eins magn niður í geymslu. Ohh ég elska að endur-skipuleggja!
Næstu helgi eru svo bara kominn 17. júní takk fyrir! Tíminn líður og líður! Í dag eru 44 dagar þangað til við förum til Spánar, vá það verður GOTT!
Af hverju gleymi ég að horfa á Melrose place og Beverly Hills á hverjum einasta degi? Ég var manna spenntust þegar þetta var að byrja en hef ekki séð einu sinni EINN þátt! Það hentar mér ekki að horfa á sjónvarp fyrr en eftir 21 á kvöldin, glatað að hafa þetta svona snemma!
Næsta fimmtudag er ég að fara út að borða með nokkrum skvísum, ætlum á Shalimar, hef heyrt gott af þeim stað og hlakka mikið til :) Fimmtudaginn í næstu viku er stefnan tekin á að fara á Austur Indíafélagið, er það ekki ÆÐI? Hef ekki smakkað sjálf en hef bara heyrt geggjaðar sögur af þeim stað! Segja mér ykkar reynslu! :)

Bloggarar
Litlir bloggarar