Leti og sól
Ég er löt við að blogga þessa dagana enda svo sem ekki margt í fréttum. Sólin er LOKSINS komin. Hildur kom heim frá Spáni í gær og ég held að hún hafi tekið sólina með sér. Ég er henni þakklát fyrir það, sólin má svo vera á Spáni 27. júlí-10. ágúst mín vegna... með mér.
Við Rikki keyptum grill fyrir örugglega þremur vikum en við erum ekki ennþá búin að kaupa kút í það. Hvað er að? Hversu flókið er að kaupa einn gaskút? Veðrið hefur svo sem ekki boðið upp á grillerí en jæja, stefnum á að kaupa hann í vikunni. Annars kann ég ekkert að grilla, getur nú varla verið svo flókið samt :/
Eftir þessa og næstu viku er ég komin í smááá sumarfrí, ekki nema eina viku samt. Svo vinn ég frá 10-26.júlí og held svo til Spánar daginn eftir. Daginn eftir að ég kem aftur, eða þann 11. ágúst mun ég svo fara í fyrsta skipti á ævi minni til Egilsstaða en þar er ættarmót. Ég hlakka bara til þó svo að ég hlakki ekki til að ferðast þangað hvort sem ég keyri eða flýg! Þoli ekki ferðalög út á land!!
Jæja... get ekki hugsað meira. Er of svöng......

Bloggarar
Litlir bloggarar