Græðgi
Mig langar í tjaldvagn og fara í útilegu um helgar. Ég vil vera skemmtilega útivistarmamman sem finnst gaman að ferðast og grilla og fara í leiki....en það kemur ekki til greina að sofa í tjaldi, ég myndi ekki sofa dúr. Ekki frekar en ég gæti sofið á dýnu á gólfi. Ég get alveg eins náð í kóngulærnar og boðið þeim upp í til mín. HROLLUR!
Ég er ennþá ekki búin að sjá einn einasta þátt af Beverly Hills eða Melrose Place. Hvað er að mér? Hversu erfitt er að muna að horfa á sjónvarpið einu sinni á dag? Ég man eftir Nágrönnum á hverjum degi, já þeim gleymi ég sko ekki. Þetta bara get ég ekki munað. Kannski í kvöld......
Eftir síðustu fræslu þá fórum við Dagrún og keyptum kút á blessað grillið. Grilluðum svo þriggja rétta máltíð um kvöldið í sólinni...I could get used to this! Ég ætla að vera dugleg að grilla í sumar. Dagrún...þú kannski kennir mér að kveikja á grillinu mínu við tækifæri ;)

Bloggarar
Litlir bloggarar