Yndislegt frí
Ohh mér finnst að það ætti alltaf að vera svona einn frídagur í hverri viku! Við nýttum gærdaginn vel. Rikki og Trausti voru úti á palli allan daginn, þetta er líka orðið svaka flott hjá þeim. Þetta verður tilbúið á næstu vikunni hugsa ég! Andrea Ósk og Tristan léku sér saman allan daginn... eins og alla aðra daga! Um kvöldið tókum við okkur saman "stóra fjölskyldan" og grilluðum saman! Mmm, þetta var æðislegur dagur í alla staði. Andrea Ósk fór svo í kvöldbaðið á hinu heimilinu sínu og var svo sofnuð fyrir kl. 20, þreytt eftir daginn!
Það styttist óðum í að ég fari að DJAMMA! Hjálpi mér allir heilagir! Það er sem sagt laugardagskvöldið 3. júní. Afmælis- kveðjupartí hjá Siljunni... haldið á Glaumbar! Ótrúlegt en satt þá er ég farin að hlakka mikið til, ég frekar þekkt fyrir að kvíða fyrir því að fara að djamma! Nei, ekki í þetta sinn, þetta verður gaman! Ég er reyndar með smá áhyggjur af því í hverju ég á að vera... en Dagga ætlar að gera mig sæta í framan... það er kannski það sem mestu máli skiptir!
Já.... og ég fór í BRASILÍSKT vax í dag! Jebb ÉG! I kid you not! Það var ekki skemmtiferð... en nú er ég búin að prófa þetta! Var ég að að deila of miklu með ykkur hérna..? Jæja, það verður að hafa það!

Bloggarar
Litlir bloggarar