Svít póteitós!
Mmm, um jólin smakkaði ég í fyrsta skipti sætar kartöflur! Það var hjá ömmu Möttu, þetta var svona stappa og út í hana hafði hún hrært steikta sveppi. Þetta er án efa það besta sem ég hef smakkað! Alveg síðan þetta kvöld er ég búin að hafa sætar kartöflur á heilanum. Ég stoppa í Hagkaup og stari á þær og læt mig dreyma um góðu sveppa-kartöflu-stöppuna. Í vinnunni horfi ég á Kristín Dóru samstarfskonu mína með heimatilbúna salatið sitt með kjúlla og sætum kartöflum mmm, ÞAÐ er girnilegt. Um daginn ákvað ég að þetta gengi ekki lengur. Ég stoppaði hjá sætu kartöflunum í Hagkaup og TÓK eina og setti hana í poka, ekki viss um hvað ég ætlaði að gera við hana en hana skyldi ég a.m.k. kaupa! Áðan lét ég verða af því að elda hana, ég skar hana í nokkra parta og setti hana í pott og sauð hana! Mmm, það kom yndisleg lykt og ég gat ekki beðið eftir að gæða mér á henni. Þegar hún var tilbúin var ég ekki alveg viss um hvað ég ætti að fá mér með henni þannig að ég ákvað að borða hana bara eintóma. Núna sit ég við stofuborðið með appelsínugula klessu í skálinni minni sem er alls ekki svo góð á bragðið. Kisan er að klára hana fyrir mig! Ohh! Ég er fúl!
Bloggarar
Litlir bloggarar