Been there... broke that!

þriðjudagur, maí 16, 2006

Svöng... eins og alltaf!

Er í vinnunni að bíða eftir að klukkan verði 12:30 svo ég geti farið í mat. Það er einhver austurlenskur fiskréttur í matinn, hljómar vel... ilmar vel!

Af hverju í andskotanum datt Chris út úr Amreican Idol í gær?? Ohh mig langaði að grenja!!! Nú held ég með Taylor, hann er bara ÆÐI! Er ekki að sjá neitt við stelpuna þarna sem allir halda svo mikið með. Hún syngur vel og allt það en er samt bara eitthvað svo... venjuleg!

Var með tvö barnaafmæli um helgina sem heppnuðust bara vel, alltaf gaman að hitta fólk og borða kökur!! Hefði verið gaman að hafa pallinn tilbúinn en það var allt í lagi... hann verður reddí í næsta afmæli! Ég sé fyrir mér YNDISLEGT sumar úti á pallinum mínum EF kóngulærnar halda sig frá mér *HROLLUR*. Ein kónguló væri nóg til þess að ég léti ekki sjá mig þarna úti í sumar..... i need help!

Jæja, farin að borða (þó að ég sé næstum því búin að missa lystina af þessu kóngulóatali.)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters