Been there... broke that!

þriðjudagur, maí 30, 2006

Ógeðslega dugleg!

Mér finnst ég ógeðslega dugleg að blogga. Bara geri varla annað þessa dagana, ha? Pallurinn minn er nánast tilbúinn takk fyrir takk! Bara eftir að "tvöfalda" og setja hlið! Djöfull verður þetta nææææs! Stefnan er tekin á grill og Breezer sull á laugardagskvöldið áður en haldið verður í veisluna miklu!

Á fimmtudaginn fer ég í litun, er að hugsa um að hafa það svona meira brúnt/kastaníubrúnt. Ég ákvað svo í gær að fá mér líka krullur, hringdi í Ástu klippikonuna mína áðan en nei, hún mælir ekki með því strax. Það er líklegast ennþá smá aflitun undir litnum í hárinu á mér þannig að það gæti orðið gúmmíkennt... það er ekki töff. Jæja, slétt verður það þá áfram... er samt orðin leið á því.

Já og VÁ hvað ég er ánægð með úrslitin í American Idol. Mér finnst Taylor ÆÐI! Þessi þáttur var líka bara GEGGJAÐUR, ætla að horfa á hann aftur á fimmtudagskvöldið!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters