Been there... broke that!

fimmtudagur, maí 18, 2006

Fokk!

Ég er með SKRÍMSLI á nefinu!! Nánar tiltekið svona undir því... á milli nasanna! Þetta var greint í vinnunni minni í dag sem FRUNSA! Fokk, þá er það í annað skiptið á minni 24 ára löngu ævi sem ég hef fengið frunsu! Hitt skiptið var daginn fyrir ferminguna mína. Hún kom samt á eðlilegan stað, ekki á NEFIÐ!

Núna sit ég uppi í rúmi að glápa á Eurovision og jújú skrifa þetta líka. Mér leiðist nefnilega, er bara að bíða eftir því að Silvía Night taki lagið! Djöfull vona ég að hún komist áfram, þó ekki sé nema bara til að keppnin á laugardagskvöldið verði skemmtilegt og líka til að stinga upp í þessar kellingar í vinnunni sem finnst hún alveg "agalega dónaleg og leiðinleg"... og segja að það sé ekki möguleiki að hún komist áfram.

Jæja, farin að fá mér popp, appelsín og suðusúkkulaði (nýja uppáhaldið mitt).

Áfram Silvía Nótt!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters