Letihelgi
Þessi helgi er búin að vera góóóð! Byrjaði hana á heimsókn til Hildar eftir Idol á föstudagskvöldið. Við drukkum kaffi, kók og borðuðum pizzu og kjöftuðum fram eftir nóttu, rosa næs!
Á laugardaginn kíktum við fjölskyldan á smá rúnt, fórum í IKEA og Smáralindina á smá flakk. Versluðum okkur nýja lampa í IKEA og bambusa sem ég setti í gluggakistuna í stofunni, i love it. Íris kíkti í heimsókn svo um miðjan daginn og stoppaði í ca. klukkutíma. Við Andrea lögðum okkur svo seinnipartinn, eiginlega alveg óvart en sváfum alveg til kl. 18:30, þvílíar svefnpurkur! Við pöntuðum svo pizzu og lágum í leti um kvöldið. Ótrúlegt en satt þá sofnuðum við mæðgur svo saman kl. 21:30. Algjör letihelgi.
Í dag er ég allavega búin að gera annað en að liggja, er búin að þrífa og þvo þvott og vera svolítið dugleg. Núna er ég ekkert þreytt, kannski vegna þess að ég er búin að sofa út í eitt alla helgina. Þannig að nú sit ég og blogga, meira dugleg sem sagt. Á morgun ætla ég að vinna lengur, það er klikkun að gera þessa dagana þannig að ekki veitir af.
Hildur var að hringja, ég ætla að tala við hana.

Bloggarar
Litlir bloggarar