Já ég lifi....
Vitlaust að gera í vinnunni, já ég veit að ég tala um það í hvert skipti sem ég skrifa hérna. Ég bara virðist ekki hafa tíma lengur til að hafa bloggsíðu. Ég kannski reyni að hripa eitthvað niður svona öðru hverju...
92 dagar í utanlandsferð, ekki nema! 14 dagar í afmælið hennar Andreu, hún er að verða 4 ára sem ég bara skil ekki, finnst ég vera nýkomin heim af fæðingardeildinni. Tíminn bara líður og ég á ennþá bara eitt barn. Ég var einhvernveginn viss um að ég myndi fara strax í að koma með annað þegar hún yrði svona 2-3 ára. Mér finnst þetta reyndar fínt og er á einhverjum stað núna þar sem ég er voða sátt að vera bara með eitt barn. Þetta er allt að verða svo þægilegt og notalegt. Svo er auðvitað hún Tara okkar hjá okkur aðra hverja helgi og eina nótt í viku þannig að maður er svona næstum því með tvö börn. Já, ég held að þetta sé fínt í bili.
Stelpur! Maja, Fribba, Fjóla, Kristín, Steinunn og co. hvort viljið þið koma í afmæli laugardaginn 13. maí eða laugardaginn 27. maí?

Bloggarar
Litlir bloggarar