Been there... broke that!

mánudagur, apríl 17, 2006

Gleðilega páska

Við keyptum tvö stór páskaegg, ég er ekki búin að borða bita af þeim, veit ekki alveg af hverju... held að ég hafi bara gleymt því og þegar ég man það þá langar mig ekki í. Æ, ég er ekki mikið fyrir svona hlussusúkkulaði, ef þetta væri lakkrísegg þá væri ég búin með þau. Fyrir löngu.

Pabbi kom í mat í gær. Eða eigum við að segja kom og eldaði mat í gær. Ég átti hér smálúðu í frystinum mínum, ég vissi að pabbi gæti töfrað eitthvað ljúffengt úr henni... sem hann að sjálfsögðu gerði. Þetta var GEGGJAÐ, ég vissi ekki að mér þætti lúða góð, ætla að hafa afganginn í matinn í kvöld!

Idol? Já, ég er mjög ánægð með úrslitin, gæti ekki verið ánægðari. Ég hélt með Snorra nánast alla keppnina, það er eitthvað við hann sem er svo æðislegt. Ég ætla að kaupa diskinn hans, pottþétt! Djöfull er hann líka sætur!!

Ég er búin að vera ofsalega löt að blogga undanfarið, varla hægt að kalla þetta blogg lengur. Ástæðan er m.a. sú að ég er að drukkna í vinnunni, það eru ALLIR að taka lán, man ekki eftir að hafa séð annað eins. Þegar ég kem heim geri ég svo yfirleitt eitthvað annað en vera í tölvunni þannig að bloggið hefur einhvernveginn alveg dottið upp fyrir, en ég ætla enn og aftur að lofa að "fara að vera duglegri að blogga" ;)

Að lokum við ég tilkynna um breytt GSM númer. Ég hef flutt mig yfir til Og vodafone (ein af góðu hugmyndunum hans Rikka) og nýja númerið mitt er 692-5258.

Takk takk og bless í bili :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters