Been there... broke that!

föstudagur, mars 24, 2006

Veikindi og vinnufjör

Í kvöld er vinnufjör hjá okkur í LSR. Það verður sem sagt haldin Karókí kepnni á Ölver. Nei, ég ætla EKKI að keppa, ég ætla að horfa!! :)

Annars er hún Andrea mín alveg fárveik greyið. Er búin að vera með bullandi hita síðan á aðfaranótt fimmtudags. Ég var með henni heima í gær og fyrir hádegi í dag en svo Rikki með henni núna eftir hádegi. Hann fór með hana til læknis og hún er með bullandi eyrnabólgu greyið. Ohh ég vorkenni henni, hún hefur gripið flestar pestir síðustu mánuði. Núna liggur hún sofandi heima, er búin að sofa nánast í allan dag enda með mjög háan hita. Ég hugsa að ég rétt skreppi út í kvöld. Meika ekki tilhugsunina um hana veika heima og ég á skralli...

Heyrðu, svo er Idolið í kvöld. Veit ekki með hverjum ég held, þetta er erfitt.

Jæja, er farin heim! Góða helgi!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters