Lasin
Ég er lasin, fór ekki í vinnuna í dag og efast um að fara á morgun. Það sem angrar mig er hálsbólga, hausverkur, hiti og beinverkir dauðans. Vil ná þessu almennilega úr mér áður en ég fer út á meðal fólks.
Ekki margt að frétta af mér annars. Ég er ánægð með úrslitin úr Eurovision og hlakka meira en venjulega til að horfa á keppnina í maí. Hvað sem gerist þá verður þetta allavega fyndið.
Í kvöld ætlaði ég að horfa á Óskarinn í endursýningu á Stöð 2 plús þegar ég væri búin að horfa á American Idol á Sirkus. Sú ákvörðun flaug út í veður og vind (bókstaflega) þegar veðrið fór að versna. Það virðist ekki mega koma vindhviða hér í Rassaboruvík án þess að allar stöðvarnar á afruglaranum detti út. Ekki hressandi.
Jæja, ég var dugleg að blogga. Nú anda ég léttar :)

Bloggarar
Litlir bloggarar